GIS bókanir
GIS – Golfklúbbur Íslendinga á Spáni – er með fasta rástíma á Vistabella, Campoamor og Peralejagolf í hverjum mánuði. Hér koma GIS meðlimir saman og skapa sín á milli skemmtilegan hitting um leið og golfhringurinn er spilaður. Mælum með að fólk mæti alla vega um klukkutíma fyrir fyrsta rástíma.
Hörður Hrafndal er okkar skipuleggjandi á hverjum golfhitting en ef þið þurfið að ná í okkar mann þá er hann með símanúmerið 00354-7756969.
Hér koma föstu GIS rástímarnir:

Campoamor
Orihuela, Alicante
Campoamor-golfvöllurinn er alveg einstaklega friðsæll og vinalegur golfvöllur. Hann er staðsettur í ákaflega fögru umhverfi, skógi vöxnu – fimm kílómetra frá ströndinni, en í góðu skjóli frá hafgolunni og í tíu kílómetra fjarlægð frá flugvellinum í Alicante.
- Golf frá
- 60 €
- Næsti lausi dagur
- 15. nóvember 2026

Vistabella
Costa Blanca, Alicante
Vistabella er talinn einn best hannaði völlur Spánar enda er það enginn annar en Manuel Pinero, sá heimsþekkti golfari, sem teiknaði völlinn. Völlurinn fær bestu meðmæli þeirra sem hafa spilað hann.
- Golf frá
- 75 €
- Næsti lausi dagur
- 16. nóvember 2026

Peralejagolf
Sucina, Murcia
Peraleja Golf er í Sucina í Murcia, skammt frá Los Alcázares og Mar Menor. Völlurinn er hannaður af Seve Ballesteros og er síðasta verk hans.
- Golf frá
- 48 €
- Næsti lausi dagur
- 23. nóvember 2026
